Þjónustur er þær vörur sem þú getur boðið skjólstæðingum þínum. Þú getur still lengd, verð og gjaldmiðil á hverri þjónustu.
Byrjið á að fara í Stillingar og svo í Þjónusta í valmyndinni vinstra megin.
Ýtið svo á Plúsinn uppi hægra megin eða með því að ýta á Skrá þjónustu til þess að bæta við þjónustu.
1. Skráðu nafn þjónustunnar, lengd og verð
2. Hægt er að tengja þjónustur við hópa t.d. ef það á að tengja sérstakar þjónustur við velferðartorg.
3. Hægt er að velja um hvort skjólstæðingar geti bókað lausa tíma í boði í dagatalinu.
Ýta svo á Vista þegar þjónustan er tilbúin til birtingar fyrir skjólstæðinga.